
þá er komið að síðasta fluguhnýtingarkvöldinu hjá okkur áður en við förum í pásu yfir sumarið.
Við verðum að venju í Stúkuhúsinu sem hefur haldið vel utan um okkur í vetur og það verða tilboð á léttum veitingum út kvöldið.
Þessir viðburðir hafa verið að koma mjög vel út, þap hefur verið mjög góð mæting og mjög góð stemning hefur myndast og greinilega mikill áhugi á fluguhnýtingum hér á svæðinu.
Fluguhnýtingar henta fólki af öllum kynjum og á öllum aldri og eru virkilega gott áhugamál þar sem maður nær góðri slökun.
Sérstakur gestur hjá okkur í þetta skiptið verður enginn annar en Örn Hjálmarsson sem er meðal annars þekktur fyrir að hafa skapað fluguna Langskegg sem hefur reynst mörgum veiðimönnum afar vel í gegnum árin í bleikjuveiði.
Það eru allir hjartanlega velkomnir og við vonumst til að sjá sem flesta, það kostar ekkert inn á viðburðinn.
Hvernig væri ef Borgnesingar myndu sameinast í bíla og koma að hnýta á Skaganum?
Hér er hlekkur á facebook viðburðinn https://fb.me/e/7AitzvtWX
