Í vetur hafa verið haldinn 4 fluguhnýtingarkvöld á vesturlandi tvö í Borgarnesi og tvö á Akranesi. það hefur verið mjög vel mætt á þessi kvöld, frá 15 upp í 28 manns hafa verið á þessum kvöldum enda fengum við frábæra gesti Kristján Friðriksson, Helga Gísladóttir og Jón Ingi Kristjánsson mættu í Borgarnesi og á Akranesi en að auki mætti Ívar Örn Hauksson á Akranesi. Breiður hópur fólks á öllum aldri mætti og var hlutfall ungra hnýtara býsna hátt, sem er frábært. þessi mikli áhugi varð til þess að forsprakkarnir Valdimar Reynisson formaður SVFB, stjórn SVFB, Jóhann Ólafur Björnsson Akranesi og Örvar Bessason haf leitt hugann að því að halda fleiri kvöld á næstunni. Valdimar og Jóhann Ólafur stofnuðu facebook hópinn Fluguhnýtingar á vesturlandi https://www.facebook.com/groups/1198043448419300/ vegna mikils áhuga á fluguhnýtingum sem kom fram í mætingu á öllum kvöldunum. Fluguhnýtingarkvöld á næstunni verða auglýst síðar. Með greininni eru nokkrar myndir frá kvölunum en fleiri myndir koma seinna.







